heidaolafs.bloggar.is
Senn koma jólin....Aðalheiður Ólafsdóttir
hæ hæ elskurnar,
veit að það er langt síðan ég lét vita af mér síðast, mikið að gera og margt búið að gerast.
Við Tóta héldum rosa flott innflutningspartý, ekki leiðinlegt að bjóða fólki hingað í nýju íbúðina. Allir gestirnir voru orðlausir yfir útsýninu og svölunum og partýið var þrususkemmtilegt.
Halldór, Eva, Hrund og Ester voru að fara frá mér eftir að hafa verið í 4 daga. Vá vá vá hvað það var yndislegt að fá þau. Hrund mín kom á undan og var hjá mér í viku. Við höfðum það öll rosa gott saman þrátt fyrir ógeðslegt gengi á dollaranum, það verður bara að taka afleiðingum eyðslunnar síðar. Fórum mikið út að borða og bara röltum um göturnar og höfðum það kósý. Þau voru auðvitað öll í skýjunum með frábæru íbúðina og útsýnið og hverfið sem ég er í núna. Æðislegt að geta boðið gestum uppá svona lúxus.
Takk elskurnar fyrir frábæra daga, mikið gaf mér þetta mikla hlýju í sálartetrið að fá ykkur.
Mér gengur rosalega vel í skólanum, það er svo gaman hvað ég finn mig mikið í þessu og allir í skólanum eru frábært fólk og góðir vinir sem ég á eftir að eiga alltaf. Það er svo ótrúlegt að ég skuli útskrifast í vor, mér finnst ég nýflutt til New York.
Það styttist óðum í að ég komi heim í gott jólafrí, aðeins tæpar 3 vikur, ótrúlegt hvað tíminn flýgur áfram. Ég get ekki beðið eftir að komast heim til Hólmavíkur. Þar byrja jólin. Alltaf jafn magnað þegar ég keyri inní fallega skreytta bæinn minn fyrir jólin, yfirleitt er smá snjór, myrkur og kyrrt og fallegt veður. Yndislega fallegt og þá byrja sko jólin.
Svo er ég byrjuð að leita að nýjum samastað fyrir nýja árið. Verð bara í lúxus íbúðinni fram í miðjan janúar, en þetta reddast allt, það þýðir ekkert að hugsa öðruvísi.
Elsku amma mín Heiða varð svo 70 ára fyrir viku og lítur sko ekki út fyrir það, innilega til hamingju með afmælið elsku amma mín. Familían fór öll saman í bústað til að fagna með ömmu og ég var í beinni í símanum alein í Ameríkunni með tárin í augunum. Hún amma mín er ótrúleg kona, svo kraftmikil og sönn íslensk súperkona. Ég er svo stolt af því að heita í höfuðið á henni og þegar ég verð 70 ára ætla ég sko að vera jafn flott og krafmikil og hún.
Veit að þetta er ekki merkilegt blogg en ég vildi bara aðeins láta vita af mér :)
ást og hlýja,
Heiða væmna
p.s. ég setti inn myndir ótrúlegt en satt