heidaolafs.bloggar.is
Sól.....Aðalheiður Ólafsdóttir
Hæ og hó,
Það er allt gott að frétta af mér þó ég sé löt að blogga :)
En ég fór sem sagt heim í spring break og hafði það alveg rosalega gott.
Fór til Hólmavíkur og slappaði þvílíkt af þar. Borðaði alltof mikið af íslenskum mat og nammi og naut þess að horfa á snjóinn og vera með fjölskyldunni. Knúsaði Grímu mína og Ösku mína í spað og klappaði á þær gat (þær eru sem sagt hundar) :)
Það er alveg ótrúlegt að finna hvað það er mikil ró þegar ég er á Hólmavík. Svolítið mikið ólíkt stórborginni New York þótt mér finnist nú Reykjavík miklu meira stressuð borg en NYC.
En allavega ég get andað og leyft mér að njóta kyrrðar og friðar á Hólmavíkinni minni, eins og þið vitið sem þaðan eruð.
Jæja svo fór ég aftur til NY með Arnari mínum og hans familí. Þau stoppuðu í NY eina helgi og flugu svo til Orlando, Florida í sólina þar.
Ég skrapp í nokkra daga heimsókn til þeirra og sleikti sólina og dúllaði mér.
Þau leigðu sér einbýlishús þar sem er risastórt, með eigin sundlaug í bakgarðinum og það var ekki svo slæmt að liggja bara á vindsæng í sundlauginni og knúsast í Arnari mínum. Very nice.
En það var erfitt að kveðja því ég hitti ekki Arnar næst fyrr en eftir 6 vikur.
Jebb ég er semsagt búin með fyrsta árið í skólanum eftir bara 6 vikur og kem þá heim í langt og gott 4 mánaða sumarfrí.
Hlakka ekkert smá mikið til.
Ótrúlegt hvað tíminn flýgur áfram, mér finnst eins og það hafi verið í gær sem ég flutti til NY en það var víst í september. Jahérna hér...
En núna er ég að telja niður dagana þangað til elsku mamma mín og Hrefna systir hennar koma til mín. Get ekki beðið, þær koma eftir 2 vikur, jibbí skibbí, og verða í heila 6 daga. Við munum sko hafa það æðislega gott, versla, skoða, fara í leikhús og borða fullt af góðum mat. Ég hlakka til.
Svo kemur Hrund mín í lok apríl og við verðum örugglega með svipað prógram og þegar mamma og Hrefna koma og svo verður hún samferða mér heim í sumarfríið 2.maí. Allt að gerast.
Ég verð mjög busy í skólanum fram að sumarfríi. Við höldum danssýningu þar sem við dönsum 3 dansa. Rosa flott. Svo er Kabarett þar sem allir syngja eitt lag og svo er það senukvöld þar sem allir leika eina senu. Þannig að tíminn á algjörlega eftir að fljúga áfram. Og svo er ég auðvitað að æfa senur og senur og lesa leikrit og leikrit og allskonar skemmtilegt. Ég reyni að plata Hrund til að taka eitthvað af þessu uppá video svo fjölskyldan geti séð stelpuna dansa eins og vindinn og svo framvegis :)
En núna er ég líka að bíða eftir að vorið bresti á hér. Það er alltaf að hlýna og það er svona c.a. 10 gráðu hiti á daginn. Ég vona að allt verði komið í blóma þegar mamma og Hrefna koma.
Jæja þetta er helst í fréttum elskurnar,
mikil hlýja til ykkar frá mér,
Heiðan ykkar
Athugasemdir
rigning og prump hérna núna samt.. en það lagast uppúr hádeginu!
gæsirnar fljúga alltaf austur yfir veturinn....
Arnar-san!
Ég er alltaf að reyna að sannfæra hana um að kaupa helling handa mér... veit ekki alveg hvernig það fer.
Er svo ekki bara í lagi að ég fari að panta dót á netinu til að neyða mömmu til að taka með heim? Má ég ekki bara senda það heim til þín þarna í Nef?
Nei haha... bara grín, ég lofa að fara ekki að kaupa fljúgandi vekjarklukkur eða eitthvað annað álíka amerískt og ofsækja þig með heimsendingum.
Kv. Sóley
Allt í flottum fíling hérna og allt að braggast, you know ;) Ég er búin í prófunum 9 maí og heimta að þá sé hressileg "kvöldskemmtun að hætti fjölskyldunnar" á næsta leiti :D
Þá verður þetta bara snemmbúin gæsunarferð??? hehe...