Aðalvalmynd

Auglýsing

Senn koma jólin....Aðalheiður Ólafsdóttir

hæ hæ elskurnar,
veit að það er langt síðan ég lét vita af mér síðast, mikið að gera og margt búið að gerast.

Við Tóta héldum rosa flott innflutningspartý, ekki leiðinlegt að bjóða fólki hingað í nýju íbúðina. Allir gestirnir voru orðlausir yfir útsýninu og svölunum og partýið var þrususkemmtilegt.

Halldór, Eva, Hrund og Ester voru að fara frá mér eftir að hafa verið í 4 daga. Vá vá vá hvað það var yndislegt að fá þau. Hrund mín kom á undan og var hjá mér í viku. Við höfðum það öll rosa gott saman þrátt fyrir ógeðslegt gengi á dollaranum, það verður bara að taka afleiðingum eyðslunnar síðar. Fórum mikið út að borða og bara röltum um göturnar og höfðum það kósý. Þau voru auðvitað öll í skýjunum með frábæru íbúðina og útsýnið og hverfið sem ég er í núna. Æðislegt að geta boðið gestum uppá svona lúxus.
Takk elskurnar fyrir frábæra daga, mikið gaf mér þetta mikla hlýju í sálartetrið að fá ykkur.


Mér gengur rosalega vel í skólanum, það er svo gaman hvað ég finn mig mikið í þessu og allir í skólanum eru frábært fólk og góðir vinir sem ég á eftir að eiga alltaf. Það er svo ótrúlegt að ég skuli útskrifast í vor, mér finnst ég nýflutt til New York.

Það styttist óðum í að ég komi heim í gott jólafrí, aðeins tæpar 3 vikur, ótrúlegt hvað tíminn flýgur áfram. Ég get ekki beðið eftir að komast heim til Hólmavíkur. Þar byrja jólin. Alltaf jafn magnað þegar ég keyri inní fallega skreytta bæinn minn fyrir jólin, yfirleitt er smá snjór, myrkur og kyrrt og fallegt veður. Yndislega fallegt og þá byrja sko jólin.

Svo er ég byrjuð að leita að nýjum samastað fyrir nýja árið. Verð bara í lúxus íbúðinni fram í miðjan janúar, en þetta reddast allt, það þýðir ekkert að hugsa öðruvísi.

Elsku amma mín Heiða varð svo 70 ára fyrir viku og lítur sko ekki út fyrir það, innilega til hamingju með afmælið elsku amma mín. Familían fór öll saman í bústað til að fagna með ömmu og ég var í beinni í símanum alein í Ameríkunni með tárin í augunum. Hún amma mín er ótrúleg kona, svo kraftmikil og sönn íslensk súperkona. Ég er svo stolt af því að heita í höfuðið á henni og þegar ég verð 70 ára ætla ég sko að vera jafn flott og krafmikil og hún.

 

Veit að þetta er ekki merkilegt blogg en ég vildi bara aðeins láta vita af mér :)

ást og hlýja,

Heiða væmna

p.s. ég setti inn myndir ótrúlegt en satt

Flutt.....Aðalheiður Ólafsdóttir

hæ elskurnar,
já ég er hérna ennþá, afsakið langt hlé.
Búið að vera mikið að gera. Arnar mnn kom í heimskókn og var í 11 daga, það var algjört æði og við höfðum það rosa gott. Alveg frábært að fá hann hérna til mín.
Svo kom Friðrik í einn dag og við fórum út að borða, gott að hittast aðeins.

Eeeeen aðal fréttirnar eru þær að ég og Tóta erum fluttar í GEGGJAÐA íbúð á GEGGJUÐUM stað. 51street og 2avenue. Erum á 15 hæð með frábært útsýni og svalir. Svalirnar eru risastórar, næstum því jafnstórar og íbúðin. Tóta fékk þessa íbúð í gegnum vinnuna hjá sér. Við sáum fram á að geta ekki borgað leigu af hinni íbúðinni þessi mánaðarmót þannig að Tóta vissi af íbúð sem vinnan hennar á eða leigir og fengum við að vera hérna og borgum helmingi minni leigu heldur en á hinum staðnum en erum í þúsund sinnum betri íbúð í þúsund sinnum betra hverfi. Algjör lúxus.
Við þurftum að flytja í snatri og leigðum því stóran sendibíl og krúsuðum á honum um Manhattan. Við fluttum allt dótið aleinar. Power í okkur, mér leið sko eins og sannri Gyðu Sól. En vá þetta var ekki auðvelt og marblettirnir á mér eru rosalegir og mér er ennþá illt í höndunum eftir að bera allt dótið upp og niður og út og suður en vá þetta var algjörlega þess virði. Ég er búin að labba hérna um hverfið með bros á vör syngjandi fáránleg gleðilög í hausnum, alveg eins og fáviti. Þetta er bara geggjað.
Það er alltaf dyravörður sem tekur á móti manni í einkennisbúning þegar maður kemur inní húsið. Það er þvottahús í kjallaranum og hérna úti á götu er allt sem hugurinn girnist. Svo fallegt og yndislegt. Mér líður eins og ég sé loksins komin til alvöru New York, eins og maður sér New York í bíómyndunum.
Þetta verður reyndar stutt stopp í þessari íbúð þar sem Tóta fer aftur til Íslands 15. janúar en vá frábært á meðan á því stendur og ætla ég að nýta hverja mínútu hérna.
Svo er algjör snilld hvað ég er nálægt skólanum mínum. Þarf bara að taka eina lest og það tekur mig 15 mínútur að komast í skólann. Snilldin ein.

Svo er ég að telja niður þangað til Hrund kemur, eftir 20 daga og Halldór, Eva og Ester koma eftir 24 daga. Það verður algjört æði.
Svo styttist heldur betur í jólin.

Þetta er helst í fréttum, sem sagt heilmikið í fréttum.
Sendi stórt knús á ykkur öll og reyni að setja inn myndir af íbúðinni fljótlega.
Ást og hlýja
Heiða Manhattan stelpa

Mús og Madonna.....Aðalheiður Ólafsdóttir

Halló aftur elskurnar og afsakið langt blogghlé.
Hef ekki alveg fundið þörf eða löngun til að skrifa hérna í þessari svörtu viku sem við íslendingar áttum.
En lífið gengur sinn vanagang, ekkert annað í stöðunni, maður breytir víst engu einn og sjálfur. Jú nema því að maður getur haft áhrif á líðan sína með jákvæðum hugsunum til dæmis og hjálpað sér þannig sjálfur.
Ég er allavega að reyna það. Pínu erfitt að vera hérna úti á meðan allt þetta gekk/gengur á. Finnst eins og þannig hafi ég ekki tekið jafn mikinn  þátt og aðrir heima og svona, æj erfitt að útskýra samt hvað ég meina. Best að segja ykkur því bara hvað á daga mína hefur drifið fyrir utan kreppuþunglyndi.

 

Á síðustu helgi hitti ég hárgreiðslufólk frá Íslandi. Þau voru hér á námskeiði og fara á Madonnu tónleika og fleira. Það var rosa gaman, fórum á flottan klúbb og komumst fram fyrir röð fyrir að vera kéééllingar frá Íslandi. Fínt að geta notað það. Kannski ekki hægt að nota það mikið lengur, nema fólk vorkenni manni núna fyrir að vera frá Íslandi og hleypi manni þess vegna inn, þarf að tékka á því.
En eins og ég sagði þau áttu miða á Madonnu tónleika, en skvísan fimmtuga spilaði á tónleikum hér í NY í Madison Square Garden. Nema hvað þau áttu aukamiða vegna forfalla og ákváðu að bjóða litlu mér á tónleikana. Alveg geggjað. Ótrúlega gaman að vera búin að sjá Madonnu á tónleikum. Hún er algjör töffari og dansar eins og vindurinn. Tók sér líka góðan tíma á tónleikunum í smá kosningaáróður fyrir Obama, sem er nú bara gott og blessað. Vöðvarnir á henni, maður lifandi, eru samt frekar fríkí. Hef aldrei séð svona stórar æðar fyrr. Það væri nú gaman að líta út eins og hún þegar maður verður fimmtugur. Held reyndar að það þurfi einhverjar læknaferðir til.......
Allavega þvílíkt upplevelsi að vera búin að sjá skvísuna á stórum flottum tónleikum. Verð að reyna að gera eitthvað skemmtilegt fyrir þau sem buðu mér, algjörar dúllur. Ástarþakkir ef þið rekist hér inn
a bloggið.

Svo eitt kvöldið í vikunni þegar ég kem heim þá hafði Tóta séð litla mús trítla í íbúðinni okkar. Ekki alveg velkominn gestur en hún hljóp eitthvert í skjól litla greyið og við höfum ekki séð hana síðan. Hún er ekki búin að reyna að borða ostinn í músagildrunum sem ég setti upp þannig að ég vona að hún sé því bara farin í næstu íbúð.

Þurfti að kaupa klósettpappír í vikunni, keypti ódýrasta sem ég fann, 12 rúllur af vondum pappír, hreint ekki þessi mjúki góði, á 14 dollara. Sem eru meira en 1400 krónur íslenskar. Ekki gaman að þessu. Spurning hvort þið getið sent mér íslensk dagblöð til skeinis......

Annars var svo gott veður um helgina. Fór í gær og í dag uppá þak á húsinum mínu í alvöru sólbað. Og ég veit, ég á að skammast mín fyrir að liggja og sóla mig í kreppunni en jæja.....

Svo kemur Arnar minn eftir aðeins 4 daga. Það verður algjört æði og heldur betur kærkomið að fá smá loving frá Íslandi.

Sendi hlýjar hugsanir til ykkar og höldum áfram að hugsa jákvætt, ekkert annað hægt að gera.

Ást og hlýja frá NY frá Heiðu ykkar



Allt í þessu fína í Kína....uuuu og í NefjorkAðalheiður Ólafsdóttir

jú góðan dag,
héðan er allt gott að frétta, bara alltaf rosa mikið að gera.
Fór í innflutningsparty hjá íslenskri stelpu um síðustu helgi með Tótu. Sú sem hélt partýið var að flytja í
geggjaða íbúð á besta stað á Manhattan á 43 hæð með brjáluðu útsýni yfir allt. Gaman að láta sig dreyma um að flytja einhvern daginn í svona lúxus. Svo fór ég í íslendinga grill á laugardaginn í fallegum garði í Brooklyn. Tóta var að sjá um þetta ásamt fleiri gellum frá skrifstofunni hennar. Get ekki sagt að það hafi verið mikið stuð en það voru grillaðar SS pylsur í boði með íslensku remolaði og alles.
Á sunnudagskvöldið fórum við Tóta svo á sjá brjálað flotta sýningu sem er þekkt hérna úti. Áhorfendur eru beðnir að koma í fötum sem mega blotna og það segir mikið um sýninguna. Algjört brjálæði en erfitt að lýsa þessu. Þetta var eins og að vera á einhverju diskóteki en samt ekki. Flottir leikarar sem lögðu sig alla í að vera snarbrjáluð, dansa, hlaupa og ég veit ekki hvað og hvað. Við stóðum allan tímann og það sem var flottast var þegar það allir horfðu upp og þar sá maður 4 gellur á gegnsæju gólfi dansa/brjálast í vatni. Mjög áhugavert að horfa á það svona frá gólfinu. Sýningin í hnotskurn: Teknó/dans/gjörningur/rave/karnival og margt margt fleira.

Svo er það bara skóli skóli skóli hjá mér útí eitt.
Við erum á fullu í Chekov núna eins og ég er örugglega búin að segja mörgum ykkar og hluti af því að vinna í hans leikritum er að fræðast um hann og landið hans Rússland. Með því að vita hans sögu getur maður vitað sögu karakteranna betur og þannig leikið þá betur. Ég fékk það verkefni að fræða mig og samnemendur mína um samband Evrópu við Rússland á tímum Chekhov og svo eru aðrir í að fræða okkur um eitthvað annað. Í dag til dæmis vorum við að fræðast um matarmenningu rússa. Þá komu þau sem áttu að sjá um það með rússneska máltíð í skólann sem við gæddum okkur á og því fylgir auðvitað vodka. Rússar drekka vodka sem skot þannig að allir skelltu í sig ansi stóru skoti af vodka. Sumir urðu því pínu skrítnir það sem eftir lifði dags en hey hvað gerir maður ekki fyrir listina...... ;)

Fór í brunch á sunnudaginn í Soho með bestu vinkonum mínum úr skólanum. Soho er bara kúl og vá svo mikið sex and the city. Við vorum saman í bekk í fyrra en ekki þetta árið þannig að við ætlum að halda því að hittast utan skóla einu sinni í viku til að kjafta og vera í sex and the city fílíng. Við erum allar útlenskar, ein frá Íslandi (sko ég :) ein frá London og ein frá Ísrael. Köllum okkur The FU eða Foreign Union (já lúðalegt ég veit en okkur finnst það fyndið). Allavega þegar ég var að taka lestina heim eftir brunchið rekst ég ekki nema á íslenskan vin sem býr ekki hér einu sinni. Var að stoppa í Nefjork í einn sólarhring. Svona tilviljanir eru alveg ótrúlegar miðað við þessa stóru borg og allar lestirnar sem ganga hér. Gaman að þessu.

Er svo að fara að hitta vinkonu frá íslandi annað kvöld. Hún er að koma hingað með skvísum frá íslandi til að versla og leika sér. Við ætlum að fá okkur cosmopolitans í massavís annað kvöld. Bara gaman.

Jæja þetta eru helstu fréttir héðan frá nef......
Sendi stórt knús yfir hafið
Heiðmundur

Halló Halló Halló.....Aðalheiður Ólafsdóttir

Hæ elskurnar,
afsakið hvað ég er löt að blogga....
Allavega komin aftur til NY og byrjuð í skólanum á FULLU.
Rosalega gaman og brjálað að gera, alveg eins og það á að vera.
Er flutt í nýja íbúð inná Manhattan, no more Brooklyn gettó fyrir mig, jibbí skibbí. Er hrikalega ánægð að vera komin inná Manhattan, miklu styttra í skólann og miklu styttra í allt.
Bý með íslenskri stelpu sem heitir Tóta, kynntist henni í gegnum Evu Maríu mína yndislegu mágkonu. Tóta er að vinna hérna á íslendinga skrifstofu sameinuðu þjóðanna og það er rosa gott að búa með henni.

Æltaði að fá mér að snæða í nýja hverfinu mínu í gærkvöldi þar sem ég kom seint heim eftir að hafa verið að vinna hópverkefni lengi eftir skóla. Stoppaði á Mexíkóskum stað hérna rétt hjá íbúðinni minni. Eini staðurinn sem var opinn þannig að ég fór inn. Inni var setið við 2 borð og það var mjög hávær hrikaleg spænsk músík í gangi. Enginn virtist ætla að afgreiða mig því allir gláptu á mig þegar ég gekk inn og hugsuðu vá shitt, þessi er að villast eitthvað. En ég gekk að barborðinu og skimaði eftir þjónustu og þá stóð ein gella upp frá öðru borðinu sem setið var við. Það voru sem sagt þjónustu stúlkurnar sem sátu þar. Ég spurði um matseðil, en það gekk illa þar sem hún skildi ekki ensku. Á endanum fékk ég einhvern visnaðan blaðsnepil sem átti að heita matseðill. Ég ætlaði að fá matinn með mér heim en ó nei, það var ekki í boði. Þanni að ég sá þann eina kost að snæða þarna  á þessum "veitingastað" þar sem ég var mjög svöng og ekkert annað í boði. ( hef ekki ennþá haft tíma til að kaupa neitt til að eiga heima í ísskápnum )
Allavega ég hugsaði með mér að þetta fólk sem vinnur þarna er augljóslega mexíkósk fjölskylda þannig að ég hlyti að fá góðan mexíkóskan heimilismat. Pantaði því kjúklinga quesedilla. Það kom og ó shitt, þetta var alls ekki mexíkóskur matur fyrir fimmaura sem er alveg magnað miðað við að starfsfólkið og eigendurnir töluðu alls ekki ensku og bara spænsku og ekkert annað. Þegar ég fer á mexíkóska staði í NY þá fæ ég ofsalega gott heimagert guagamólí en þarna var þetta einhver matur með grænni drullu ofan á sem átti að heita guagamólí. Svo pantaði ég salsa sósu og þau könnuðust ekki við neitt sem heitir salsa sósa. Fékk eitthvað rautt viðbjóðslegt slubberí í skál sem átti ekkert skylt við salsa. Svo er ég pínu hrædd um að kjúklingurinn sem átti að vera í matnum mínum hafi alls ekki verið kjúklingur heldur eitthvað allt annað "kjöt". En allavega þetta var upplifelsi eins og allt annað hér í Nefjork borg og ég sat bara þarna og reyndi að vera kurteis og notaði tímann og lærði á meðan fólkið þarna glápti á mig. Og eitt enn, hrikalega mexíkóska/spænska tónlistin var í BOTNI allan tímann og spænsk sápuópera í gangi í sjónvarpinu. Heldur betur gaman að skoða fólk og drekka í sig mismunandi menningu svo ég tali nú ekki um hvað það nýtist mér mikið í leiklistinni að skoða og upplifa fólk og atferli. Aldrei dauð mínúta í Nef......... :)

Hér er hlýtt og gott veður, algjört æði að lengja sumarið svona.
Ég trúi því varla að það sé kominn fimmtudagur strax, tíminn flýgur þegar það er svona mikið að gera.
Og mér líður núna eins og sumarið hafi aldrei gerst einhvern veginn, er strax komin í skóla rútínuna eins og fyrir heilum 4 mánuðum síðan.
En er reyndar akkurat núna að hlusta á poppland dagsins á netinu, svo gott að heyra aðeins í popplandsstrákunum og fá smá heima fílíng. Og þá man ég að ég var að vinna þar í sumar en ekki hér :)

Arnar minn kemur í heimsókn í október, ójess, og svo koma Halldór minn, Eva mín, Hrund mín og Ester mín í lok nóvember, verða hérna yfir þakkargjörðarhátíðina þannig að ég hlakka mikið til að fá allt þetta fólk sem ég elska hingað til mín.
Svo eru mínar yndislegu vinkonur Allý og Rebekka búnar að bóka ferð hingað í byrjun maí, bara gaman.
Þannig að þið hin, jebb það er fullt af dögum eftir til að koma í heimsókn og fá fría gistingu hjá mér og gefa mér knús.

Blogga fljótlega aftur.... lofa....
Sakna ykkar og knús á línuna,
xxx
Heiðan ykkar



Ja hérna hér...........Aðalheiður Ólafsdóttir

Jú kem til Íslands eftir aðeins einn og hálfan dag,
Ótrúlegt en satt þá var ég að klára fyrsta árið mitt í skólanum, mér finnst eins og ég hafi flutt til NY í gær.
Tíminn flýgur og ég er búin að hafa það æðislega gott í NY, fíla borgina og allt sem hún hefur uppá að bjóða í botn.

Senu-kvöldið gekk rosalega vel og fengum við, ég og Courtney, mjög góð viðbrögð. Og danssýningin góða gekk líka eins og í lygasögu. Hrund mín tók þetta allt upp og ég er komin með dvd diska af Kabarettinun og senu-kvöldinu sem útvaldir fá að sjá :)

Ég fór svo á fund með skólastjóranum í dag þar sem við fórum yfir árið og ég fékk umsagnir frá öllum kennurunum mínum.
Ég er alveg í skýjunum með fallegu orðin sem ég fékk að heyra í dag frá kennurunum og skólastjóranum. Og hann sagði að honum og skólanum væri heiður að fá mig aftur næsta haust til að klára námið mitt.

Gaman að þessu. Það er nefnilega verið að reka fólk á þessum fundum, það fólk sem hefur ekki staðið sig þennan vetur og þeim er ekki boðið að halda áfram í skólanum.
Gleði gleði gleði.

Knús og mikil hlýja til ykkar frá mér og við sjáumst heima :)

Heiða aka Snowflake úr gettóinu)

Íslandið nálgast.........Aðalheiður Ólafsdóttir

Halló elskurnar,

já ég braut loforðið mitt um að vera dugleg að blogga, jæks.
Kem heim eftir aðeins viku, trúi því ekki hvað tíminn er fljótur að líða.

Hrund mín yndislegasta kom í gærkvöldi, hún flaug hratt frá Íslandi og þurfti því að bíða eftir mér greyið úti á flugvelli þar sem ég er svo lengi í skólanum alltaf og sérstaklega núna þar sem skólaárið er að klárast.
En það bjargaðist allt, við reyndar vorum í 1 og hálfa klukkustund að komast heim til mín því leigubílstjóra greyið villtist all svakalega á leiðinni í gettóið. En hún fékk allavega vænan útsýnistúr.
Í dag var svo 23 stigi hiti þannig að Hrund skoðaði í búðir með Andreu  og naut veðursins á meðan ég var í skólanum.

Kabarettinn gekk alveg ótrúlega vel, það var rosalega gaman að syngja loksins fyrir fólkið í skólanum. Og skólastjórinn sagði við mig eftir giggið " Heiða, this was your New York debut" gaman að því, ég var ekki búin að hugsa þetta þannig. Þannig að ég er ánægð með fyrsta giggið í NY, vonandi fyrsta af mörgum....... :)

Annars er ég alltaf að tjilla með fræga fólkinu, jah eða kannski ekki alveg en næstum því. :) Hitti Jerry Stiller, sá sem leikur pabbann í King of Queens og Seinfeld. Tók fína mynd af okkur sem ég set hérna inná myndasíðuna til vinstri. Algjör dúllukall.
Og svo kom leikari og hélt fyrirlestur í skólanum mínum, hann lék t.d. í einum þætti af Friends, þar lék hann mann sem Pheobe var að deita, hann var sporty týpa, alltaf í stuttbuxum og engum naríum með allt hangandi úti. Þið Friends aðdáendur munið eftir honum. Hann lék líka einhvern tímann í Seinfeld. Hann var svalur og gaman að hitta hann.
Alltaf líf og fjör í Nef.

Ég er annars spennt fyrir komandi sumri, er komin með rosalega spennandi vinnu. Eiginlega smá draumur hjá mér að rætast þar.  Ég hlakka ekkert smá til að takast á við það verkefni en er jafnframt pínu kvíðin en það er alltaf gaman að takast á við eitthvað krefjandi.

Svo á mánudaginn er senudagur okkar fyrsta árs nema. Það er allir leika í einni senu og það er opið fyrir fólk að koma að horfa. Senufélagi minn heitir Courtney, stelpa úr bekknum mínum, algjör snillingur og senan okkar er mjög fyndin þannig að það verður gaman.
Svo er það danssýningin á miðvikudaginn, er aðeins meira kvíðin fyrir henni en það verður líka gaman. Ég þarf að dansa heil 3 númer. Dirty dancing, jeah....... Nobody puts baby in the corner.........

Hrund mín mætir á þetta allt að sjáfsögðu og tekur myndir, ég sé svo til hvort þið fáið að sjá sýnishorn af danssýningunni góðu.


mikið mikið stórt knús til ykkar frá mér,

Hædí



Kabarett.....Aðalheiður Ólafsdóttir

Halló góðan dag,
afsakið hvað það er langt síðan ég bloggaði, búið að vera mikið að gera.

Mamma mín og Hrefna voru hjá mér í 6 daga og áttum við alveg hreint æðislegan tíma saman.
Þær voru rosalega duglegar að bjarga sér 2 á meðan ég var í skólanum enda voru þær í fullri vinnu við að versla eins og íslendingar gera í útlöndum.
Við tókum lestina villt og galið og þær voru eins og innfæddar hér í gettóinu mínu í Brooklyn.
Þær fengu góðar móttökur hérna í hverfinu fyrsta kvöldið, það beið okkar þessi fíni róni hérna fyrir utan búðina á neðri hæðinni og allt. Við byrjuðum á að skella okkur í búðina mína sem er beint fyrir neðan svefnherbergið mitt, við þurftum að versla okkur eitthvað í vökvaformi eins og íslendingar gera líka í útlöndum. :)
En búðin mín hérna er svolítið sérstök, kallast reyndar supermarket en það er super lítið hægt að versla þarna. Ein tegund af alltof feitri mjólk er til dæmis á boðstólum og ofsalega ógirnilegt "kjötborð" og fleira í þeim dúr. Ég kaupi þarna bara vatn og bjór eiginlega. En það sem er merkilegt við þessa ágætu búð er að hún er full af drasli, allskonar dótarí til sölu sem ég held ég eigi aldrei nokkurn tíma eftir að kaupa. Dósamatur og fullt af pökkum með einhverskonar matarkyns held ég.
En í búðinni er köttur. Jebb, hann er líka alltaf inní húsinu mínu. Hann var sem sagt stökkvandi á milli hilla þegar þær komu í sína fyrstu ferð í búðina og mér varð á að segja eins og ekkert væri sjálfsagðara "já sem sagt kisi er hérna til að éta mýsnar"

Mamma er með algjöra músafælni þannig að ég hefði kannski átt að þegja um tilvist kattarins. En svona er þetta bara víst hérna.

Þegar ég var búin í skólanum á daginn þaut ég beint að hitta þær systurnar og skoða hvað hafði verið verslað þann daginn og svo skelltum við okkur út að borða á einhvern af milljón frábæru veitingastöðunum í NY og höfðum það æðislega gott.
Sáum einn söngleik, Mama Mia, það var stuð og fjör og bara dúlluðum okkur.
Alveg dásamlegt að fá þær hingað og saknaði ég þeirra mikið eftir að þær fóru.

En það er nóg að gera þannig að ég er á fullu í verkefnum til að hafa ekki tíma til mikils saknerís.
Kem heim eftir aðeins 2 og hálfa viku, ótrúlegt, og Hrund kemur á fimmtudaginn í næstu viku. Sjúddírallírei.

Á föstudagskvöldið næsta er Kabarettinn minn í skólanum. Það er mikil spenna í kringum það í skólanum og mikið æft, þetta verður gaman.
Það reyndar kemur enginn frá mér að sjá mig en það er attílæ, þetta verður tekið uppá video svo familían geti séð þegar ég kem heim.
Ég skellti mér í Macy's áðan eftir skóla og keypti Calvin Klein kjól á kúk og kanil þannig að ég er spennt að skarta honum í Kabarettinum.

Þetta er helst í fréttum núna, ég lofa að reyna að vera duglegri að skrifa :)

stórt knús til ykkar frá mér,
Hædí

Júlíus, þú ekur......Aðalheiður Ólafsdóttir

jú góðan dag,
aldeilis góður dagur því í morgun fæddi Emilía vinkona mín stúlkubarn, litla prinsessan lét bíða eftir sér í 12 daga en kom loksins í heiminn í morgun kl. 08:05. Innilega til hamingju elsku Emilía og Elvar.

Páskarnir voru góðir hér í kotinu í Brooklyn þó ég hefði nú ekki haft neitt á móti því að vera heima með fjölskyldunni.

En Andrea fékk sendingu frá Íslandi þannig að hér var íslenskur matur á borðum. Hangiket, ora baunir, kartöflur og uppstú(hvernig skrifar maður þetta? ;), íslenskar flatkökur með al-íslenskum SMJÖRVA.
Og Andrea bauð 3 íslenskum strákum að njóta matarins með okkur og áttum við rosa fína kvöldstund. Svo voru að sjálfsögðu nóa-siríus páskaegg í eftirétt.
Very nice.

Tískan hérna í hverfinu mínu, jess the ghetto, er jah... ekki alveg íslensk svona vægast sagt.
Karlmennirnir hér eru í alveg hriiiikalegum jökkum. Þetta eru svona leðurjakkar eða ekta gervileðurjakkar. Alltof stórir, svartir með rosalegum bling bling myndum á bakinu. Ég verð eiginlega að nálgast mynd af einum slíkum því þetta eru afar hmmm.... áhugaverðar flíkur. Þegar Halldór og Eva voru hérna hjá mér í nóvember vorum við mikið að spá í að fjárfesta í einum slíkum bara svona til að sjá viðbrögðin á Íslandi ef Halldór minn myndi nú skarta einum góðum heima.
Svo eru það auðvitað naríurnar og rassinn uppúr og alltof stórar gallabuxur. Skórnir eru reimaðir bage litaðir. Og svo eru það höfuðfötin, já þau eru svartur nælonsokkur sem ég get aðeins haldið að þeir hafi fundið inní skáp hjá mæðrum sínum og yfir nælonið kemur svo alltof stór og breið derhúfa.
Og það nýjasta, jú það þykir afar svalt að hafa merkimiðana á fötunum, það er, á skónum, gallabuxunum og á derhúfunni. Svo má ekki gleyma bling bling í eyrum. Merkilegt finnst mér.
En allir hipp og kúl og fylgja greinilega tískunni.
Stelpurnar eru í strippara stígvélum með mikið af bling bling á, gallabuxum girtum ofaní og í annaðhvort svona velúr peysu í allskonar litum og að sjálfsögðu  með bling bling á eða í lítilli úlpu með hettu og já að sjálfsögðu blingedí bling.
Og eyrnalokkarnir, jah, þeir eru þeir stærstu sem ég hef séð. Ég fæ pínu verk í eyrnasneplana af að sjá þá hanga, en aftur allir fylgja tískunni.
En það er mjög merkilegt og gaman að sjá að öll fallegu börnin hérna, ofsalega sæt, eru öll í mjög flottum fötum. Stelpurnar eru í fallegum kápum eða úlpum og strákarnir líka, hlýjum og góðum. Hrein og fín og flest í merkjavörum þó að flest þeirra eigi nú ekki vel efnaða foreldra. Og með rosa flottar fléttur í hárinu.
Foreldrarnir sem ég sé eru síðan yfirleitt alltof ung og þreytuleg en það er nú önnur saga.
Svo er gaman í strætó hérna á sunnudögum því þá eru eldri konur á leið í kirkju í glæsilegum pastellituðum kjólum með hatt í sama pastellit í stíl og í spariskóm, svörtum með afar þykkum klumpahæl. Þið hafið séð þetta í bíómyndum og getið örugglega séð kjólinn og hattinn fyrir ykkur.

Það finnst mér alltaf gaman að sjá, fara í besta kjólinn sinn til kirkju.

Jább þetta er svolítið ólíkt öllu heima en frábært að sjá og upplifa eitthvað nýtt.

Ég var annars að koma frá Manhattan þar sem ég var að æfa senu með bekkjarbróður mínum. Senan gerist á bekk í Central Park og æfðum við okkur úti á einum slíkum. Það er alveg fyndið að sjá hvernig fólk bregst við svona snarbiluðu fólki, því það veit jú ekki að við erum að æfa senu, það heldur bara að við séum nett biluð. En það er allt í lagi, það eru allir nett bilaðir hérna og mikið um að fólk tali við sjálft sig og svo framvegis.

En aðalmálið núna er auðvitað þetta: ELSKU MAMMA MÍN OG HREFNA MÍN KOMA Á MORGUN. Jibbí skibbí.

hlýjar hugsanir til ykkar og hafið það æðislega gott,
ykkar Heiða

Sól.....Aðalheiður Ólafsdóttir

Hæ og hó,

Það er allt gott að frétta af mér þó ég sé löt að blogga :)
En ég fór sem sagt heim í spring break og hafði það alveg rosalega gott.
Fór til Hólmavíkur og slappaði þvílíkt af þar. Borðaði alltof mikið af íslenskum mat og nammi og naut þess að horfa á snjóinn og vera með fjölskyldunni. Knúsaði Grímu mína og Ösku mína í spað og klappaði á þær gat (þær eru sem sagt hundar) :)
Það er alveg ótrúlegt að finna hvað það er mikil ró þegar ég er á Hólmavík. Svolítið mikið ólíkt stórborginni New York þótt mér finnist nú Reykjavík miklu meira stressuð borg en NYC.

En allavega ég get andað og leyft mér að njóta kyrrðar og friðar á Hólmavíkinni minni, eins og þið vitið sem þaðan eruð.


Jæja svo fór ég aftur til NY með Arnari mínum og hans familí. Þau stoppuðu í NY eina helgi og flugu svo til Orlando, Florida í sólina þar.

Ég skrapp í nokkra daga heimsókn til þeirra og sleikti sólina og dúllaði mér.

Þau leigðu sér einbýlishús þar sem er risastórt, með eigin sundlaug í bakgarðinum og það var ekki svo slæmt að liggja bara á vindsæng í sundlauginni og knúsast í Arnari mínum. Very nice.

En það var erfitt að kveðja því ég hitti ekki Arnar næst fyrr en eftir 6 vikur.

Jebb ég er semsagt búin með fyrsta árið í skólanum eftir bara 6 vikur og kem þá heim í langt og gott 4 mánaða sumarfrí.
Hlakka ekkert smá mikið til.

Ótrúlegt hvað tíminn flýgur áfram, mér finnst eins og það hafi verið í gær sem ég flutti til NY en það var víst í september. Jahérna hér...

En núna er ég að telja niður dagana þangað til elsku mamma mín og Hrefna systir hennar koma til mín. Get ekki beðið, þær koma eftir 2 vikur, jibbí skibbí, og verða í heila 6 daga. Við munum sko hafa það æðislega gott, versla, skoða, fara í leikhús og borða fullt af góðum mat. Ég hlakka til.

Svo kemur Hrund mín í lok apríl og við verðum örugglega með svipað prógram og þegar mamma og Hrefna koma og svo verður hún samferða mér heim í sumarfríið 2.maí. Allt að gerast.


Ég verð mjög busy í skólanum fram að sumarfríi. Við höldum danssýningu þar sem við dönsum 3 dansa. Rosa flott. Svo er Kabarett þar sem allir syngja eitt lag og svo er það senukvöld þar sem allir leika eina senu. Þannig að tíminn á algjörlega eftir að fljúga áfram. Og svo er ég auðvitað að æfa senur og senur og lesa leikrit og leikrit og allskonar skemmtilegt. Ég reyni að plata Hrund til að taka eitthvað af þessu uppá video svo fjölskyldan geti séð stelpuna dansa eins og vindinn og svo framvegis :)

En núna er ég líka að bíða eftir að vorið bresti á hér. Það er alltaf að hlýna og það er svona c.a. 10 gráðu hiti á daginn. Ég vona að allt verði komið í blóma þegar mamma og Hrefna koma.

Jæja þetta er helst í fréttum elskurnar,
mikil hlýja til ykkar frá mér,
Heiðan ykkar


Síða 1 af 2